SUMARJAZZ 2025

á Jómfrúartorginu

Sumar

Sumarjazzinn

Jazzprógrammið er á sínum stað á hverju sumri. Það er Sigurður Flosason sem fer með skipulagsvald í gerð dagskrár, Jómfrúin sér um bjórinn, matinn og sólina á Jómfrúartorginu.  Fyrstu tónleikar verða samkvæmt venju fyrsta laugardag í júní og svo alla laugardaga út ágúst, milli 15 og 17. Leikið er utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis.

Það jafnast ekkert á við jazz!

JÚNÍ

7. júní - Silva Þórðardóttir

Hin frábæra Silva syngur standarda og íslensk dægurlög.

Silva Þórðardóttir: söngur, Haukur Gröndal: saxófónn og klarinett, Tómas Jónsson: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen: trommur

14. júní - Sigrún Erla og Tómas R: Koss

Ein af okkar bestu ungu söngkonum, Sigrún Erla Grétarsdóttir, fagnar 25 ára afmæli plötu Tómasar R. Einarssonar, „Koss“, frá árinu 2000 með höfundinum og fleiri góðum.

Sigrún Erla Grétarsdóttir: söngur, Vignir Þór Stefánsson: píanó, Tómas R. Einarsson: kontrabassi, Matthías Hemstock: trommur

21. júní - Jómfrúin fer til Ísafjarðar! Djúpmenn og gestir.

Enginn jazz í Reykjavík en Jómfrúarjazzinn heimsækir tónlistarhátíðina „Við Djúpið“ á Ísafirði. Djúpmenn flytja ísfirska, íslenska og alþjóðlega tónlist.

Halldór Smárason: hljómborð, Valdimar Olgeirsson: bassi og Kristinn Gauti Einarsson: trommur, ásamt gestum. Leikið er á Hótel Ísafirði og hefjast tónleikar klukkan 13:00. Miðar á viddjupid.is

28. júní - Selma og Hansa

Hinar dásamlegu Selma og Hansa bjóða upp á prógram söngleikjalaga í jazzbúningi.

Selma Björnsdóttir: söngur, Jóhanna Vigdís Arnardóttir: söngur, Agnar Már Magnússon: píanó, Nico Moreaux: kontrabassi, Einar Scheving: trommur

JÚLÍ

5. júlí - Helga María Ragnarsdóttir

Helga María er frábær íslensk söngkona búsett í Stokkhólmi.

Helga María Ragnarsdóttir: söngur, Hróðmar Sigurðsson: gítar, Birgir Steinn Theódórsson: kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen: trommur

12. júlí - Unnur Birna og Tríó Bjössa Thor

Þessi góða samsetning hefur aldrei klikkað.

Unnur Birna Björnsdóttir: söngur og fiðla, Björn Thoroddsen: gítar, Sigurgeir Skafti Flosason: bassi, Óskar Þormarsson: trommur

19. júlí - Sigurdís Sandra

Við kynnum Sigurdísi, frábæran píanóleikara og söngkonu sem hefur verið við nám í Danmörku undanfarin ár.

Sigurdís Sandra Tryggvadóttir: píanó og söngur, Sigurður Flosason: saxófónn, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Péter Horváth: trommur

26. júlí - Múlakvintettinn

Hinn þrautreyndi Múlakvintett býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.

Haukur Gröndal: altó saxófónn, Ólafur Jónsson: tenor saxófónn, Ásgeir Ásgeirsson: gítar, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Erik Qvick: trommur

ÁGÚST

2. ágúst - Þór Breiðfjörð - Rokkið swingar

Þór færir íslenska og erlenda rokkslagara í skemmtilegan sveiflubúning.

Þór Breiðfjörð: söngur, Sigurður Flosason: saxófónn, Agnar Már Magnússon: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Einar Scheving: trommur

9. ágúst - Friðrik Ómar á Reykjavík Pride

Friðrik Ómar leiðir þaulreynda hljómsveit í dagskrá sem tengist hinsegin höfundum ólíkra tónlistarstíla.

Hljómsveit og gestir kynntir síðar.

16. ágúst - DJÄSS og Björn Atle Anfinsen

Norski trompetleikarinn Björn Atle verður gestur tríósins í fjölbreyttri dagskrá sem m.a. mun innihalda frumsamin lög og tónlist eftir Gunnar Þórðarson.

Björn Atle Anfinsen: trompet, Karl Olgeirsson: píanó, Jón Rafnsson: kontrabassi, Kristinn Snær Agnarsson: trommur

23. ágúst - Rebekka og Kalli djassa Ellý og Villa

Hin mögnuðu Rebekka Blöndal og Karl Olgeirsson fara í föt hinna elskuðu systkina Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna og bæta jazzinum í blönduna.

Rebekka Blöndal: söngur, Jóel Pálsson: saxófónn, Karl Olgeirsson: píanó, Nico Moreaux: kontrabassi

30. ágúst - Kvartett Sunnu Gunnlaugs og Marína

Söngkona ársins á síðustu tónlistarverðlaunum og hið frábæra tríó Sunnu Gunnlaugs flytja skemmtilega dagskrá, meðal annars með lögum eftir konur og lögum Sunnu við ljóð Jóns úr Vör. Atriðið er í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur.

Marína Ósk Þórólfsdóttir: söngur, Sunna Gunnlaugsdóttir: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Scott McLemore: trommur

SUMMARJAZZ 2025

ekki missa af þessu!