á Jómfrúartorginu
Jazzprógrammið er á sínum stað á hverju sumri. Það er Sigurður Flosason sem fer með skipulagsvald í gerð dagskrár, Jómfrúin sér um bjórinn, matinn og sólina á Jómfrúartorginu. Fyrstu tónleikar verða samkvæmt venju fyrsta laugardag í júní og svo alla laugardaga út ágúst, milli 15 og 17. Leikið er utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis.
Það jafnast ekkert á við jazz!
Hin frábæra Silva syngur standarda og íslensk dægurlög.
Silva Þórðardóttir: söngur, Haukur Gröndal: saxófónn og klarinett, Tómas Jónsson: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen: trommur
Ein af okkar bestu ungu söngkonum, Sigrún Erla Grétarsdóttir, fagnar 25 ára afmæli plötu Tómasar R. Einarssonar, „Koss“, frá árinu 2000 með höfundinum og fleiri góðum.
Sigrún Erla Grétarsdóttir: söngur, Vignir Þór Stefánsson: píanó, Tómas R. Einarsson: kontrabassi, Matthías Hemstock: trommur
Enginn jazz í Reykjavík en Jómfrúarjazzinn heimsækir tónlistarhátíðina „Við Djúpið“ á Ísafirði. Djúpmenn flytja ísfirska, íslenska og alþjóðlega tónlist.
Halldór Smárason: hljómborð, Valdimar Olgeirsson: bassi og Kristinn Gauti Einarsson: trommur, ásamt gestum. Leikið er á Hótel Ísafirði og hefjast tónleikar klukkan 13:00. Miðar á viddjupid.is
Hinar dásamlegu Selma og Hansa bjóða upp á prógram söngleikjalaga í jazzbúningi.
Selma Björnsdóttir: söngur, Jóhanna Vigdís Arnardóttir: söngur, Agnar Már Magnússon: píanó, Nico Moreaux: kontrabassi, Einar Scheving: trommur
Helga María er frábær íslensk söngkona búsett í Stokkhólmi.
Helga María Ragnarsdóttir: söngur, Hróðmar Sigurðsson: gítar, Birgir Steinn Theódórsson: kontrabassi, Magnús Trygvason Eliassen: trommur
Þessi góða samsetning hefur aldrei klikkað.
Unnur Birna Björnsdóttir: söngur og fiðla, Björn Thoroddsen: gítar, Sigurgeir Skafti Flosason: bassi, Óskar Þormarsson: trommur
Við kynnum Sigurdísi, frábæran píanóleikara og söngkonu sem hefur verið við nám í Danmörku undanfarin ár.
Sigurdís Sandra Tryggvadóttir: píanó og söngur, Sigurður Flosason: saxófónn, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Péter Horváth: trommur
Hinn þrautreyndi Múlakvintett býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Haukur Gröndal: altó saxófónn, Ólafur Jónsson: tenor saxófónn, Ásgeir Ásgeirsson: gítar, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Erik Qvick: trommur
Þór færir íslenska og erlenda rokkslagara í skemmtilegan sveiflubúning.
Þór Breiðfjörð: söngur, Sigurður Flosason: saxófónn, Agnar Már Magnússon: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Einar Scheving: trommur
Friðrik Ómar leiðir þaulreynda hljómsveit í dagskrá sem tengist hinsegin höfundum ólíkra tónlistarstíla.
Hljómsveit og gestir kynntir síðar.
Norski trompetleikarinn Björn Atle verður gestur tríósins í fjölbreyttri dagskrá sem m.a. mun innihalda frumsamin lög og tónlist eftir Gunnar Þórðarson.
Björn Atle Anfinsen: trompet, Karl Olgeirsson: píanó, Jón Rafnsson: kontrabassi, Kristinn Snær Agnarsson: trommur
Hin mögnuðu Rebekka Blöndal og Karl Olgeirsson fara í föt hinna elskuðu systkina Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna og bæta jazzinum í blönduna.
Rebekka Blöndal: söngur, Jóel Pálsson: saxófónn, Karl Olgeirsson: píanó, Nico Moreaux: kontrabassi
Söngkona ársins á síðustu tónlistarverðlaunum og hið frábæra tríó Sunnu Gunnlaugs flytja skemmtilega dagskrá, meðal annars með lögum eftir konur og lögum Sunnu við ljóð Jóns úr Vör. Atriðið er í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur.
Marína Ósk Þórólfsdóttir: söngur, Sunna Gunnlaugsdóttir: píanó, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi, Scott McLemore: trommur